Um Vísindamiðlun

Vísindamiðlun ehf. var stofnað með það markmið að efla vísindalæsi á Íslandi og gera vísindi aðgengilegri fyrir börn, ungmenni, kennara og almenning.

Ástæðurnar fyrir því að ég fór af stað með þetta verkefni eru nokkrar.

  1. Í fyrsta lagi tók ég þátt í Háskóla unga fólksins og var með smiðju þar sem við skutum upp vatnseldflaugum. Það vakti athygli mína hversu mikið þetta kveikti í nemendum. Mörg þeirra spurðu mig hvar væri hægt að nálgast svona vatnseldflaugar sem ég held að sé ágæt vísbending um að svona efni geti raunverulega vakið áhuga og kennt vísindi á sama tíma.
  2. Ég hafði áður unnið tvö verkefni með styrk úr Þróunarsjóði námsgagna við þróun kennsluefnis. Sú reynsla var mér mjög dýrmæt, en á sama tíma þá sýndi hún mér líka ákveðið gat í kerfinu. Það er vissulega frábært að til séu sjóðir sem styðja kennara og aðra sem vilja þróa námsefni, en mín upplifun var sú að það vantaði aðila sem sæi um að miðla slíku efni áfram af krafti og koma því inn í skólastofur á landsvísu (Hvar er Ríkisútgáfa námsbóka í dag?). Annars er hætt við að gott efni nýtist fyrst og fremst í nánasta umhverfi þess sem bjó það til, í stað þess að ná til miklu fleiri nemenda og kennara.
  3. Oft er talað eins og markaðurinn á Íslandi sé einfaldlega of lítill til að það borgi sig að þróa og miðla góðu fræðsluefni á íslensku. Það kann vel að vera að þetta sé hvorki auðveldasta né arðbærasta leiðin til að byggja upp fyrirtæki. Ég hef þó aldrei sóst eftir frægð og frama. Mig langar frekar að gera heiðarlega tilraun til að leggja mitt af mörkum til að efla vísindalæsi á Íslandi en að sitja hjá og fylgjast með þróuninni án þess að reyna neitt.

Nánara fræðsluefni í tengslum við tilraunirnar sem eru hér til sölu má finna á tilraunir.is.