Á tilraunir.is má finna verkseðla og verklýsingar fyrir ódýrar og aðgengilegar vísindatilraunir. Þessi verslun er hugsuð sem hagnýt framlenging á því verkefni: staður þar sem hægt er að nálgast þann búnað sem þarf til að framkvæma tilraunirnar sjálfar. Í stað þess að þurfa að leita að hlutum á mörgum mismunandi stöðum er markmiðið að safna þeim saman á einum stað hér á Íslandi og gera fólki kleift að panta þá með skjótum, ódýrum og einföldum hætti.
Tilraunirnar og búnaðurinn eru fyrst og fremst hugsaðar fyrir náttúrufræðikennara í grunnskólum og eðlisfræðikennslu á framhaldsskóla- og háskólastigi. En þetta er líka hugsað fyrir forvitin börn, áhugasöm ungmenni og fjölskyldur sem vilja gera meira en að horfa bara á fræðsluefni og vilja frekar prófa hlutina sjálf.
Tilraunasett til sölu
-
Millimetrapappír
50 kr. -
Vatnseldflaug
Original price was: 2.990 kr..2.590 kr.Current price is: 2.590 kr..

