Vatnseldflaugar (5 stykki – frí sending)

11.990 kr.

Skemmtileg vísindatilraun sem virkjar innra barnið í öllum sem prófa hana og vekur upp þá forvitnilegu spurningu: Af hverju fer hún svona ótrúlega hátt?

Vísindin sem liggja hér að baki eru þau sömu og notuð eru til að skjóta geimflaugum á loft. Þegar vatnið þeytist niður úr flöskunni fær eldflaugin kraft upp á við og skýst hátt upp í loftið. Sjá myndband hér fyrir neðan ásamt fagnaðarópum viðstaddra.

Fyrir hvern er vatnseldflaugin?

  • forvitin börn sem hafa gaman af tilraunum og uppgötvunum
  • fjölskyldur sem vilja skemmtilega samveru utandyra án síma
  • kennara og vísindamiðlara sem vilja efla vísindalæsi

Vinsamlegast athugið:

Hjólapumpa og flaska fylgja ekki með. Hægt er að nota flestar plastflöskur, svo lengi sem plasthringurinn á stútnum hefur verið tekinn af.

Flokkur:

Hér sést vatnseldflaugarskot. Einföld og örugg uppsetning, mikið fjör og frábært tækifæri til að kynnast eðlisfræði á lifandi hátt.

Hún fer svo hátt að hún hverfur út úr myndinni um stund. Takið líka eftir lotningarópum viðstaddra.